150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2019 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn.

428. mál
[15:51]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2019. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneytinu og Ólaf Kr. Hjörleifsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2019, sem gerð var 8. maí 2019, um breytingu á XIII. viðauka um flutningastarfsemi við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2017/352, sem gerð var 15. febrúar 2017, um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Ari Trausti Guðmundsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifaði undir álitið í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Gunnar Bragi Sveinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta nefndarálit skrifa Sigríður Á. Andersen, formaður nefndarinnar, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Logi Einarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Smári McCarthy og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.