150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.

[13:39]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég tek til máls um fundarstjórn forseta í tilefni af orðum hv. þm. Loga Einarssonar áðan um samkomulag um útpörun. Ég gerði grein fyrir því á fundi þingflokksformanna í morgun að við og Framsókn tækjum inn tvo varamenn í stað þingmanna sem eru erlendis alla vikuna umfram það sem við höfðum áformað. Ég verð að geta þess að það á sér þá skýringu að í gær reyndi stjórnarandstaðan — og tókst — að hindra atkvæðagreiðslu með fjarvist úr þingsal. Við þær aðstæður að stjórnarandstaðan beiti slíkum brögðum verður stjórnarmeirihlutinn að vera fullmannaður. Þessi innköllun varamanna af okkar hálfu er einfaldlega viðbrögð við því fundarskapatrixi sem stjórnarandstaðan beitti hér í gær.

Þetta liggur alveg skýrt fyrir og við þurfum ekkert að vera í sárindum eða leiðindum út af því. Það liggur fyrir að ef stjórnarandstaðan mætir ekki til þingstarfa og mætir ekki í atkvæðagreiðslur verður stjórnarmeirihlutinn að vera fullmannaður.