150. löggjafarþing — 48. fundur,  17. des. 2019.

þingfrestun.

[18:33]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 150. löggjafarþings, frá 16. desember 2019 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 20. janúar 2020.

Gjört í Reykjavík, 13. desember 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 150. löggjafarþings, er frestað.

Ég þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir gott samstarf það sem af er þingvetri og óska þeim sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og friðar og farsældar á komandi ári.