150. löggjafarþing — 52. fundur,  23. jan. 2020.

Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.

57. mál
[12:49]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað og lögum um aukatekjur ríkissjóðs, öðru nafni gjaldfrjáls rafræn útgáfa. Frumvarpið var áður lagt fram á 149. og 148. löggjafarþingi. Þá komu umsagnir frá Hagsmunasamtökum heimilanna og Öldu, félagi um sjálfbærni og lýðræði. Þó að ekki sé einu sinni búið að klára að mæla fyrir þessu máli er nú þegar komin umsögn um það frá Hagsmunasamtökum heimilanna á þessu þingi.

Breytingin er sú að 7. gr. laga um Stjórnartíðindi og lögbirtingablað orðist svo, ásamt fyrirsögn:

„Rafræn útgáfa Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs.

Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað skulu gefin út og þeim dreift gjaldfrjálst á rafrænan hátt. Við rafræna útgáfu skal tryggja öryggi og áreiðanleika birtra upplýsinga og að þær varðveitist á varanlegan hátt og gagnasnið útgáfunnar sé opið og aðgengilegt. Rafrænni útgáfu Lögbirtingablaðs skal hagað þannig, eftir því sem tæknilega er unnt, að komið sé í veg fyrir úrvinnslu og samtengingu persónuupplýsinga sem birtar eru. Við rafræna útgáfu skal útgáfudagur tilgreindur.

Haga skal útgáfu Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs þannig að vél- og hugbúnaður sem flestra nýtist. Skulu þeir sem þess óska geta keypt Stjórnartíðindi eða Lögbirtingablað í prentuðu formi í áskrift eða fengið einstök tölublöð send gegn greiðslu kostnaðar af prentun þeirra og sendingu.

Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað skulu vera aðgengileg á tölvutækan hátt í opinni gagnagátt.

Ráðherra mælir í reglugerð nánar fyrir um rafræna útgáfu Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs, þar á meðal um gagnaöryggi, varðveislu gagna og persónuvernd, og um aðgengi ritanna á tölvutækan hátt í opinni gagnagátt.“

Síðan er breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs um að 14. gr. b laganna falli niður af því að þetta á að vera gjaldfrjáls rafræn útgáfa. Þetta er ekki miklu flóknara en þetta. Það er einfaldlega verið að gera lagabreytingu um að það sé skylda að Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði sé dreift á rafrænan hátt, að aðgengi að rafrænni útgáfu verði notendum að kostnaðarlausu og að allt sem birtist í þessum ritum skuli vera aðgengilegt á tölvutækan hátt á aðgengilegu og opnu gagnasniði í opinni gagnagátt, t.d. opingogn.is eða island.is. Samhliða því er lagt til að fella brott 14. gr. b laga um aukatekjur ríkissjóðs enda verður ekki lengur kveðið á um í lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað að greiða skuli gjald fyrir rafrænan aðgang að Lögbirtingablaði samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs.