150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

afsögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

[15:15]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég segi ekkert annað en það að ég er afskaplega döpur. Ég bara segi það að ég varð fyrir hálfgerðu áfalli yfir því að þessi unga, efnilega kona, sem hefur stýrt stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd af þeim skörungsskap sem ég hef fengið að vera aðnjótandi sem áheyrnarfulltrúi, þá sjaldan sem ég hef haft tækifæri til þess að mæta í þessa nefnd, skuli sjá sig knúna til að stíga til hliðar. Við erum nýkomin með svarta skýrslu um það hvernig okkur líður í vinnunni, hvernig allt of mörgum líður í vinnunni sinni hér. Illa. Hvernig skyldi standa á því? Með alls konar eineltis- og ofbeldistöktum hefur minni hlutinn verið kúgaður undir meiri hlutanum. Það gildir nákvæmlega þarna sem annars staðar. En að þessi unga kona sem hefur verið til fyrirmyndar sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar skuli sjá sig knúna til að stíga til hliðar er meira en áfellisdómur yfir okkur sem vinnum hér á hinu háa Alþingi. Ég er sorgmædd yfir því að þetta skuli vera komið fram.