150. löggjafarþing — 129. fundur, 29. júní 2020.
hollustuhættir og mengunarvarnir.
436. mál
Forseti. Þetta er orðið hið ágætasta mál og unnið í fínu samráði innan nefndarinnar. Ég vildi bara vekja athygli á því að nefndin náði saman um skýr skilaboð til ráðherra um að hefja heildarendurskoðun á þessum lögum því að þau eru gríðarlega flókin og óskilvirk. Ég vildi bara vekja athygli á því og hvetja ráðherra þar til dáða.