151. löggjafarþing — 6. fundur,  8. okt. 2020.

tekjuskattur.

3. mál
[11:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir endurfluttu og lítið eitt breyttu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt. Í frumvarpinu er lagt til að lögfestar verði reglur um sektarheimild ríkisskattstjóra þegar skjölunarskyldir lögaðilar láta hjá líða að fara að ákvæðum 5. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga í milliverðlagningarmálum. Þá er jafnframt lagt til að skýra orðalag sama ákvæðis með þeim hætti að ljóst sé að skjölunarskylda taki einnig til viðskipta lögaðila við fasta starfsstöð sína og málsliðaröðun er lítillega breytt án efnislegra breytinga.

Grundvallaratriði við alla framkvæmd er að skjölunarskyldir aðilar uppfylli þær skyldur sínar að skjala með fullnægjandi hætti viðskipti sín við tengda aðila. Þykir því brýnt að leggja til framangreinda sektarheimild. Við samningu ákvæðisins var horft til nýlega settra laga um raunverulega eigendur og 15. gr. þeirra um stjórnvaldssektir ásamt 120. gr. laga um ársreikninga en um sektarfjárhæð var horft til nágrannalandanna. Þá var litið til þess að nauðsynlegt væri að sektarfjárhæð væri lækkuð ef lögaðili bætti úr annmörkum innan eins, tveggja eða þriggja mánaða, að fyrirmynd 120. gr. laga um ársreikninga, til að knýja á um upplýsingaskil. Ríkisskattstjóri hefur nú þegar heimildir samkvæmt fyrrgreindum lögum til að beita aðila sektum í ákveðnum tilvikum.

Um nýbreytni er að ræða í íslenskum skattarétti ef frumvarp þetta verður að lögum, að ríkisskattstjóri fái heimild til að beita skattaðila sektum vegna umræddra brota á lögum umfram álagsbeitingarheimild 108. gr. tekjuskattslaga. Ákvæði XII. kafla tekjuskattslaga og þá 108. gr. um álagsbeitingu ríkisskattstjóra og ákvæði 109. gr. um sektarheimildir skattrannsóknarstjóra eru ekki talin ná þeim tilgangi að knýja á um upplýsingaskil. Talið er að verði frumvarp þetta að lögum muni það ekki leiða til þess að beiting 109. gr. verði útilokuð í málum vegna milliverðlagningar lögaðila, jafnvel þótt sektarheimild hafi áður verið beitt vegna seinni og/eða ófullnægjandi skila á upplýsingum samkvæmt 5. mgr. 57. gr. laganna.

Ætla má að verði frumvarpið samþykkt muni það hafa veruleg áhrif á gæði skjölunar og skil skjölunarskyldra aðila á upplýsingum vegna milliverðlagningar þar sem það muni hafa kostnað í för með sér að láta hjá líða að skila inn upplýsingum eða standa skil á upplýsingum með ófullnægjandi hætti. Er þá litið til reynslu af tilkomu sektunarheimildar ársreikningaskrár ríkisskattstjóra og verulega bætt skil á ársreikningum eftir að sektarheimild var tekin upp í lög á árinu 2007 og eftir að heimildin var hert verulega á árinu 2016, samanber 120. gr. laga um ársreikninga. Ákvæði um lækkun stjórnvaldssektar ef skattaðili bregst við innan mánaðar til þriggja mánaða er jafnframt talin nauðsynleg til að skattaðili sjái fremur ávinning af því að bregðast við en ekki.

Ekki er talið að áhrif breytingartillögunnar verði veruleg á stjórnsýslu ríkisins verði frumvarpið að lögum. Frumvarpið er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í náinni samvinnu við starfsmenn skattsins á sviði milliverðlagningar og að höfðu samráði við skattrannsóknarstjóra og að teknu tilliti til þeirra umsagna sem bárust um málið á síðasta þingi. Þá voru drög að frumvarpinu lögð fram að nýju á samráðsgátt stjórnvalda.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.