151. löggjafarþing — 12. fundur,  21. okt. 2020.

störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ljósmynd Morgunblaðsins af lögreglukonu sem bar merki hvítra þjóðernissinna og táknmynd teiknimyndaandhetjunnar „Punisher“ eða refsarans, með leyfi forseta, við skyldustörf sín hefur vakið verðskuldaða athygli í dag. Hönnun þessara merkja er ekki aðeins sakleysisleg tilvísun í teiknimyndapersónu úr Marvel-heiminum heldur táknmynd lögreglunnar vestan hafs sem refsandi afls þeirra sem taka lögin og refsingar í eigin hendur og sneiða fram hjá réttarkerfinu. Skilaboðin eru að lögreglan hafi það hlutverk að refsa borgurunum fyrir ætluð lögbrot þeirra, rétt eins og refsarinn gerir. Slík viðhorf geta ekki talist æskileg í samfélagi sem segist a.m.k. styðja betrunarstefnu og réttarríki.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst því yfir á Twitter að hún hafi ítrekað við allt starfsfólk sitt að lögreglumenn eigi ekki að bera nein merki sem ekki eru viðurkennd á lögreglubúningi og að því verði fylgt eftir. Það eru vissulega jákvæðar fréttir en betur má ef duga skal, sérstaklega í ljósi ummæla lögreglukonunnar sem um ræðir sem sagði í samtali við Vísi að merki sem þessi væru notuð af mörgum lögreglumönnum og að hún teldi ekki að þau þýddu neitt neikvætt en hún hafi sjálf borið merkin í áraraðir.

Ummæli lögreglukonunnar benda til þess að annaðhvort skorti mikilvæga fræðslu innan lögreglunnar um rasísk og ofbeldisfull merki eins og Vínlandsfánann og „Punisher“, eða refsaramerkið, nú eða það sem verra væri, að rasismi og ofbeldisfull menning fái að grassera innan lögreglunnar. Hvort tveggja er óásættanleg staða. Ég mun því óska eftir því að allsherjar- og menntamálanefnd taki þetta mál fyrir á fundi og ræði við fulltrúa lögreglunnar um rasisma innan lögreglunnar og aðferðir til að sporna við honum.