151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

félagsleg aðstoð og almannatryggingar .

361. mál
[15:06]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um býsna mikilvægt mál. Það skiptir máli að öll þingnefndin náði saman um þetta mál. Hér er mikilvægur stuðningur við viðkvæma hópa og hér er stigið eitt skref í þá átt að bæta kjör öryrkja sem eru með lægstu bæturnar. Þetta er mikið fagnaðarefni, herra forseti, og ég hvet þingmenn til að sameinast í atkvæðagreiðslunni.