151. löggjafarþing — 67. fundur,  16. mars 2021.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá félags- og barnamálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 918, um heimilisuppbót og sérstaka uppbót almannatrygginga og aldurstakmörk námsmanna, frá Ólafi Þór Gunnarssyni; frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 953, um flokkun úrgangs sem fluttur er úr landi, frá Karli Gauta Hjaltasyni, og loks frá dómsmálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 915, um fjölda lögreglumanna 1. febrúar 2021, frá Karli Gauta Hjaltasyni.