151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

628. mál
[11:23]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil bara lýsa ánægju með að við skulum vera að samþykkja þessi lög hér í dag, raforkulögin. Þetta er gríðarlega stórt mál. Hér er verið að horfa til framtíðar. Hér er verið að horfa til loftslagsverkefna í samfélaginu okkar til næstu 10, 20, 30 ára og lögin verða stór þáttur í innleggi Íslendinga í loftslagsmálin næstu áratugi. Ég er mjög ánægður með þá vinnu sem fór fram í atvinnuveganefnd í tengslum við þetta mál. Þetta er gott mál.