152. löggjafarþing — 16. fundur,  22. des. 2021.

jólakveðjur.

[19:27]
Horfa

Forseti (Líneik Anna Sævarsdóttir):

Áður en ég slít fundi vil ég nota tækifærið og færa öllum alþingismönnum og starfsfólki okkar og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilega og friðsæla jólahátíð.

Eins og hv. þingmönnum er kunnugt, verður þingfundum fram haldið þriðja í jólum þannig að aðskilnaður okkar verður ekki langur að þessu sinni. Miðað er við að þinghaldið verði 27. og 28. desember. Þá þarf að afgreiða fjárlög og nokkur önnur mál sem þurfa fullnustu fyrir áramót.

Ég endurtek jólakveðjur mínar til hv. þingmanna og fyrir hönd okkar forsetanna þakka ég gott samstarf á annasömum og óvenjulegum dögum sem að baki eru. Þeim sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil að loknu þessu stutta jólahléi.