152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.

98. mál
[18:41]
Horfa

Flm. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég flyt hér tillögu til þingsályktunar um að Alþingi álykti að fela félags- og vinnumarkaðsráðherra að gera úttekt á kostnaði við að koma upp orlofshúsum fyrir örorkulífeyrisþega á völdum stöðum á Íslandi. Horft verði sérstaklega til orlofshúsa verkalýðshreyfingarinnar sem fyrirmyndar. Úttektin verði unnin í samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins. Lagt verði mat á þörf, umfang, kostnað og mögulegar fjármögnunarleiðir. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður úttektarinnar eigi síðar en 1. maí 2022.

Herra forseti. Svona hljómar tillögutextinn. Þessi tillaga hefur áður verið lögð fram og hefur ekki hlotið afgreiðslu og er nú endurflutt án breytinga, nema þeirrar breytingar að titill ráðherrans hefur breyst en það breytir ekki efnisinntaki tillögunnar.

Ákvæði um orlof launafólks náðu fram að ganga í kjarasamningum nokkurra verkalýðsfélaga á fimmta áratugnum og voru slík ákvæði lögfest í kjölfarið. Þá þegar höfðu fáein verkalýðsfélög ráðist í byggingu orlofshúsa fyrir félagsmenn sína, en uppbyggingin gekk þó hægt, einkum ef horft er til norrænna fyrirmynda. Það var svo í tíð vinstri stjórnar Hermanns Jónassonar á ofanverðum sjötta áratugnum að stjórnvöld stigu með ákveðnum hætti inn í orlofshúsamálin með beinum framlögum í orlofsheimilasjóð verkalýðshreyfingarinnar og loforðum um land til uppbyggingar þeirra. Niðurstaðan varð myndarleg sumarhúsabyggð í Ölfusi sem tekin var í notkun á árinu 1964. Upp frá þessu hefur verkalýðshreyfingin riðið þétt net orlofshúsa um land allt sem gefið hefur félagsfólki hennar gott færi á að njóta hvíldar í frítíma sínum í heilnæmu umhverfi.

Þótt mikilvægi þess að komast í frí fjarri heimili sínu sé öllum ljóst er aðgangur örorkulífeyrisþega að slíkri þjónustu takmarkaður. Ráða þar bæði hönnun og aðgengi að orlofshúsum en ekki síður sú staðreynd að afnot af orlofshúsum tengjast yfirleitt þátttöku á vinnumarkaði og því að tilheyra stéttarfélagi. Örorkulífeyrisþegar eru jafnframt margir hverjir í tekjulægri hópum þjóðfélagsins og eiga því enn erfiðara með að leigja sér orlofshús á frjálsum markaði. Fjölgun ferðamanna undanfarin ár og fyrir Covid, og við vonum held ég öll að verði aftur núna þegar landið fer að rísa eftir Covid, dró ekki úr þeim vanda enda getur verið dýrt að leigja sér orlofshús á hinum frjálsa markaði.

Með tillögu þessari er ráðherra því falið að gera úttekt á kostnaði við að koma upp orlofshúsum fyrir örorkulífeyrisþega á völdum stöðum á Íslandi með góðu aðgengi og á viðráðanlegu verði, þannig að aðgengi örorkulífeyrisþega að orlofshúsnæði verði sambærilegt við það sem gerist hjá félagsmönnum stéttarfélaga landsins. Ég held að við þekkjum það öll sem höfum getað nýtt okkur að fara í sumarbústað hvað það er gott fyrir sálina og andlega líðan að brjóta upp hversdagsleikann og fara og njóta þess að vera í fríi, annaðhvort einn með sjálfum sér eða með fjölskyldu og vinum, í góðum sumarbústað og það er mikilvægt að allir þjóðfélagshópar hafi kost á slíku úrræði.

Ég vil taka það fram að þessi tillaga er gríðarlega hógvær enda er einungis verið að fela ráðherra að byrja undirbúningsvinnu. Það er hins vegar vinna sem er mjög mikilvæg af því að það skiptir máli að koma ekki bara upp kerfi orlofshúsa fyrir örorkulífeyrisþega heldur verður öll aðgengisumgjörðin hvað varðar fýsískt aðgengi að húsunum að vera í lagi þannig að þau nýtist öllum fötlunarhópum og séu með algilda hönnun að leiðarljósi. Þannig að þetta er mikilvæg grunnvinna sem með þessari tillögu er verið að leggja til.

Það er allnokkur hópur þingmanna sem stendur að tillögunni ásamt þeirri sem hér stendur. Flutningsmenn eru ásamt mér hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Ásmundur Friðriksson, Inga Sæland, Orri Páll Jóhannsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Guðbrandur Einarsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Ég ætla, herra forseti, ekki að hafa um þessa tillögu fleiri orð að sinni en vonast til þess að hún fái gott brautargengi, enda um mikilvægt mál að ræða. Ég legg til að að þessari umræðu lokinni verði henni vísað til hv. velferðarnefndar.