152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:05]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að hann lítur ekki svo á að forsætisráðherra hafi brugðist illa við þeirri málaleitan sem átti sér stað 20. janúar sl., en aðstæður voru með þeim hætti að ekki var hægt að verða við þrýstingi af hálfu forseta um að fjölga ráðherrum í óundirbúnum fyrirspurnum. Á því er nokkur munur.