Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

gjaldþrotaskipti o.fl.

277. mál
[16:55]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég er ögn forvitin. Nú sit ég í fyrsta skipti í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og fæ þetta mál til umfjöllunar fyrst núna. Ég heyrði hv. þingmann tala um að umsagnaraðilar hefðu verið mjög jákvæðir gagnvart þessu máli. Þá vil ég spyrja hvers vegna ekki náðist samkomulag í nefndinni um að klára málið, því eftir því sem ég man og hef glöggvað mig á þá var það ekki endilega tímaskortur sem kom í veg fyrir það.