154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

framlag fyrirtækja til byggingar varnargarðs.

[13:57]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Ég fylgi þessu kannski eftir með því að spyrja hvort eitthvert formlegt samtal eða vinna sé hafin innan ríkisstjórnarinnar í þá átt sem ráðherra talaði um varðandi hlutdeild fyrirtækja í því sem þarf að gera á svæðinu.