28.1.2019

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Mánudaginn 28. janúar taka Birgir Þórarinsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkja þá varamenn þeirra Elvar Eyvindsson og Olga Margrét Cilia af þingi. Þá tekur Albert Guðmundsson sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Guðlaug Þór Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson tekur sæti sem varamaður fyrir Þórunni Egilsdóttur.