20.10.2022

Aðalmenn taka sæti

Föstudaginn 21. október tekur Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkur þá varamaður hennar, Elsa Lára Arnardóttir, af þingi. Laugardaginn 22. október taka Halla Signý Kristjánsdóttir, Jódís Skúladóttir, Haraldur Benediktsson og Inga Sæland sæti á ný á Alþingi og víkja þá varamenn þeirra, Iða Marsibil Jónsdóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Teitur Björn Einarsson og Wilhelm Wessman af þingi.