51. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. mars 2015
kl. 09:30
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:30Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:30
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:30
Björt Ólafsdóttir og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 11.30.
Páll Jóhann Pálsson vék af fundi kl. 12.00.
Jón Gunnarsson vék af fundi kl. 12.10.
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) Fundargerð. Kl. 09:30
Fundargerð 49. fundar var samþykkt.
2) 420. mál - fjárfestingarsamningur við Thorsil ehf. um kísilmálmverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ Kl. 09:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Jón Ásgeir Tryggvason frá embætti ríkisskattstjóra og Hákon Björnsson frá Thorsil ehf.
3) 11. mál - ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi Kl. 10:45
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund
Margréti Sæmundsdóttur og Þórð Reynisson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Guðberg Rúnarsson frá Landssambandi fiskeldisstöðva og Árna Ólafsson frá Menju ehf.
Kristján L. Möller óskaði eftir því að iðnaðar- og viðskiptaráðherra kæmi á fund nefndarinnar vegna málsins.
4) 74. mál - jarðalög Kl. 12:20
Málið var ekki tekið fyrir.
5) Önnur mál. Kl. 12:20
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 12:20