66. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 11. maí 2021
kl. 10:37
Mætt:
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 10:37Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 10:37
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 10:37
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 10:37
María Hjálmarsdóttir (MH), kl. 10:37
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 11:05
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 10:37
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 10:37
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 10:37
Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 10:37
Dagskrárlið frestað.
2) 704. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar Kl. 10:39
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, Hrefnu Karlsdóttur og Jón Kristin Sverrisson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 755. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald o.fl. Kl. 11:38
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigrúnu Brynju Einarsdóttur og Þórarin Örn Þrándarson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Nefndin ákvað að Haraldur Benediktsson yrði framsögumaður málsins.
4) Önnur mál Kl. 11:58
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:58