12. fundur
atvinnuveganefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 8. mars 2022 kl. 09:07


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:07
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:07
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:07
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:07
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:07
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:07
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:07

Berglind Ósk Guðmundsdóttir tilkynnti forföll.

Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Gestir tóku þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:07
Fundargerðir 10. og 11. fundar voru samþykktar.

2) Fiskveiðistjórn Kl. 09:07
Á fund nefndarinnar komu Agnar Bragi Bragason, Guðmundur Jóhannesson, Jón Þrándur Stefánsson og Skúli Kristinn Skúlason frá matvælaráðuneyti.

Gestir viku kl. 9:47 og nefndin ræddi málið.

3) 73. mál - stjórn fiskveiða Kl. 10:59
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Inga Sæland verði framsögumaður þess.

4) 59. mál - stjórn fiskveiða Kl. 10:59
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Inga Sæland verði framsögumaður þess.

5) Önnur mál Kl. 10:59
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:59