26. fundur
atvinnuveganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 2. febrúar 2023 kl. 09:10


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:10
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:10
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:10
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:10
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:35
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:10
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:10

Berglind Ósk Guðmundsdóttir boðaði forföll. Gísli Rafn Ólafsson og Hanna Katrín Friðriksson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 25. fundar var samþykkt.

2) 537. mál - stjórn fiskveiða Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Örvar Marteinsson og Þorstein Bárðarson frá Samtökum smærri útgerða og Högna Bergþórsson frá Samtökum iðnaðarins og Samtökum skipaiðnaðarins.

3) 539. mál - stjórn fiskveiða Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Örvar Marteinsson og Þorstein Bárðarson frá Samtökum smærri útgerða og Högna Bergþórsson frá Samtökum iðnaðarins og Samtökum skipaiðnaðarins.

4) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15