12. fundur
atvinnuveganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 14. nóvember 2023 kl. 09:00


Mætt:

Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) formaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Daði Már Kristófersson (DMK), kl. 09:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:00
Magnús Árni Skjöld Magnússon (MagnM), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:00

Gísli Rafn Ólafsson boðaði forföll.
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 09:45.

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 11. fundar var samþykkt.

2) Kynning á drögum að frumvarpi um sjávarútveg Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Benedikt Árnason, Friðrik Árna Friðriksson Hirst og Rebekku Hilmarsdóttur frá matvælaráðuneyti.

3) Önnur mál Kl. 10:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:35