38. fundur
atvinnuveganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, fimmtudaginn 22. febrúar 2024 kl. 09:00


Mætt:

Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) formaður, kl. 09:00
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Friðrik Már Sigurðsson (FriðS), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) 483. mál - dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim o.fl. Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið. Allir viðstaddir nefndarmenn voru samþykkir afgreiðslu málsins frá nefndinni. Undir nefndarálit meiri hluta nefndarinnar rita Þórarinn Ingi Pétursson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Friðrik Már Sigurðsson, Hanna Katrín Friðriksson, Tómas A. Tómasson og Óli Björn Kárason. Birgir Þórarinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

3) 29. mál - Orkustofnun og raforkulög Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið. Allir viðstaddir nefndarmenn voru samþykkir afgreiðslu málsins frá nefndinni. Undir nefndarálit meiri hluta nefndarinnar rita Þórarinn Ingi Pétursson, Ásmundur Friðriksson,Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, Gísli Rafn Ólafsson, Tómas A. Tómasson og Óli Björn Kárason. Birgir Þórarinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

4) 505. mál - búvörulög Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Pál Gunnar Pálsson og Magnús Þór Kristjánsson frá Samkeppniseftirlitinu.

5) Önnur mál Kl. 10:25
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:25