21. fundur
atvinnuveganefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 28. nóvember 2012 kl. 15:21


Mættir:

Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 15:27
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 15:21
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 15:21
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 15:21
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 15:21
Þór Saari (ÞSa), kl. 15:21

BVG, JRG og KLM boðuðu forföll.
LRM stýrði fundi.

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 17:18
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 415. mál - stjórnarskipunarlög Kl. 15:22
Á fund nefndarinnar komu Ómar Ragnarsson, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason og Gísli Tryggvason. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til tiltekinna þátta málsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 283. mál - velferð dýra Kl. 16:32
Á fund nefndarinnar kom Sigurborg Daðadóttir frá Dýraverndarráði. Sigurborg kynnti nefndinni afstöðu ráðsins til málsins og svaraði spurningum nefndarmanna að því loknu.
Á fundinum var afhent skjal með tillögum um breytingar á 11. gr. þingmálsins.

4) Önnur mál. Kl. 17:20
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 17:20