87. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 23. júní 2015
kl. 18:30
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 18:30Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 18:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 18:30
Eldar Ástþórsson (EldÁ) fyrir Björt Ólafsdóttur (BjÓ), kl. 18:30
Fjóla Hrund Björnsdóttir (FHB) fyrir Pál Jóhann Pálsson (PJP), kl. 18:30
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 18:30
Kristján L. Möller (KLM), kl. 18:40
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 18:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 18:30
Haraldur Benediktsson boðaði forföll.
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) 691. mál - stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl Kl. 18:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Arnór Snæbjörnsson og Jóhann Guðmundsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
LRM, KLM og EldÁ óskuðu að bókað yrði:
„Við leggjum til að framkomnar breytingartillögu sjávarútvegsráðuneytisins við frumvarpið verði sendar til umsagnar og umsagnaraðilum veittur hefðbundinn tveggja vikna frestur til að skila umsögn.“
LRM óskaði að bókað yrði:
„Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til ráðherra".
JÞÓ lýsti yfir stuðningi við þessa tillögu.
Því var frestað að taka tillögurnar fyrir.
2) Önnur mál. Kl. 20:30
Fundi slitið kl. 20:30