60. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 19. ágúst 2016
kl. 09:40
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:40Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:40
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:40
Árni Páll Árnason (ÁPÁ) fyrir Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:40
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:40
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:40
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:40
Páll Jóhann Pálsson og Björt Ólafsdóttir boðuðu forföll.
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) 680. mál - búvörulög o.fl. Kl. 09:40
Farið var yfir álit um mál 783, samningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur, til utanríkismálanefndar. Álitið var afgreitt af meiri hlutanum: JónG, HarB, ÁsF, ÞorS, ÞórE.
2) Önnur mál Kl. 10:10
HarB benti á skýrslu Arion banka um atvinnuvega og lagði til að nefndin kynnti sér efni hennar.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:10