88. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 5. júní 2020
kl. 13:00
Mætt:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 13:00Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 13:40
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 13:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 13:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 13:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 13:00
Brynjar Níelsson og Jón Steindór Valdimarsson voru fjarverandi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.
Nefndarritarar:
Steindór Dan Jensen
Ívar Már Ottason
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 13:00
Dagskrárlið frestað.
2) 594. mál - tekjuskattur Kl. 13:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Theodóru Emilsdóttur og Ólaf Guðmundsson frá Skattrannsóknarstjóra.
3) 447. mál - ársreikningar Kl. 13:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Halldór Pálsson frá Skattinum.
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu.
4) 843. mál - Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins Kl. 13:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heimi Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
5) 711. mál - Kría - sprota- og nýsköpunarsjóður Kl. 14:10
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu.
6) Önnur mál Kl. 14:30
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 14:30