59. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, þriðjudaginn 14. júní 2022 kl. 18:30


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 18:35
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 18:35
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 18:35
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 18:35
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 18:35
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 18:35
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 18:35

Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 18:35
Frestað.

2) 143. mál - tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks Kl. 18:35
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta með frávísunartillögu standa Guðrún Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Orri Páll Jóhannsson.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir ritar undir nefndarálitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

3) Önnur mál Kl. 19:10
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:15