25. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 4. desember 2019
kl. 11:00
Mættir:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 11:00Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 11:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 11:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 11:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 11:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 11:00
Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorsteinn Víglundsson voru fjarverandi.
Nefndarritari: Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 11:00
Dagskrárlið frestað.
2) 245. mál - tollalög o.fl. Kl. 11:00
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til þriðju umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna utan Oddnýjar G. Harðardóttur sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
3) 432. mál - breyting á ýmsum lögum um skatta Kl. 11:05
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með fresti til 9. desember og að Bryndís Haraldsdóttir yrði framsögumaður þess.
4) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:05