30. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, fimmtudaginn 12. desember 2019 kl. 18:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 18:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 18:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 18:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 18:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 18:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 18:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 18:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ) fyrir Þorgrím Sigmundsson (ÞorgS), kl. 18:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 18:10

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 18:10
Dagskrárlið frestað.

2) 223. mál - neytendalán Kl. 18:10
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.

Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir, Brynjar Níelsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Jóhannes Friðrik Friðriksson og Ólafur Ísleifsson skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta og breytingartillögur, þar af Ólafur Ísleifsson með fyrirvara.

3) Önnur mál Kl. 18:20
Nefndin fjallaði um 15. mál, tillögu til þingsályktunar um Tæknistjóra ríkisins, og 129. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (starfslokaaldur).

Fundi slitið kl. 18:30