74. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, laugardaginn 9. maí 2020 kl. 09:00


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:00
Álfheiður Eymarsdóttir (ÁlfE), kl. 09:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:00
Inga Sæland (IngS), kl. 09:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) 725. mál - fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:00
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna utan Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Allir viðstaddir nefndarmenn utan Oddnýjar G. Harðardóttur og Álfheiðar Eymarsdóttur skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta og breytingartillögur, þar af Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Jón Steindór Valdimarsson með fyrirvara.

Oddný G. Harðardóttir og Álfheiður Eymarsdóttir boðuðu að lögð yrðu fram minnihlutaálit.

2) Önnur mál Kl. 09:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:30