14. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 16. nóvember 2023 kl. 09:10


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 10:03
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10

Ásthildur Lóa Þórsdóttir boðaði forföll.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 13. fundar var samþykkt.

2) 468. mál - skattar og gjöld Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðlaugu Maríu Valdermarsdóttur, Guðmund Skúla Hartvigsson, Brynhildi Kr. Aðalsteinsdóttur og Ingibjörgu Helgu Helgadóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Þá var ákveðið að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnafresti og að Teitur Björn Einarsson verði framsögumaður þess.

3) Framkvæmd samkeppnislaga og eftirlit með samkeppnisbrotum - umgjörð, málsmeðferð og starfsemi Samkeppniseftirlitsins Kl. 10:24
Frestað.

4) Önnur mál Kl. 10:35
Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:38