19. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 21. nóvember 2014 kl. 09:02


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:02
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 09:02
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:10
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 09:07
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:02
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:10
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:02
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:02

Guðmundur Steingrímsson og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Nefndin samþykkti fundargerð 18. fundar.

2) 390. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 09:03
Á fund nefndarinnar komu Eiríkur Áki Eggertsson, Esther Finnbogadóttir og Þórhallur Arason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Ragnar Árni Sigurðarson og Sturla Pálsson frá Seðlabanka Íslands, Jón Rafn Ragnarsson aðalendurskoðandi Seðlabanka Íslands og Ingi K. Magnússon og Sveinn Arason frá Ríkisendurskoðun. Fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Seðlabanka Íslands kynntu nefndinni efni frumvarpsins. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 2. mál - virðisaukaskattur o.fl. Kl. 11:00
Frestað.

4) 3. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015 Kl. 11:00
Frestað.

5) 8. mál - greiðsludráttur í verslunarviðskiptum Kl. 11:00
Frestað.

6) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:00