24. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 28. nóvember 2014
kl. 08:09
Mættir:
Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 08:09Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 08:09
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 08:23
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 08:13
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 08:09
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 08:43
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 08:09
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 08:09
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 08:34
Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:09
Nefndin samþykkti fundargerð 23. fundar.
2) 2. mál - virðisaukaskattur o.fl. Kl. 08:13
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Þá var lögð fram tillaga um að málið yrði afgreitt á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt með atkvæðum Frosta Sigurjónssonar, Péturs H. Blöndal, Willum Þórs Þórssonar, Líneikar Önnur Sævarsdóttir, Unnar Brár KOnráðsdóttur og Vilhjálms Bjarnasonar.
3) 3. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015 Kl. 08:50
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Þá var lögð fram tillaga um að málið yrði afgreitt á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt með atkvæðum Frosta Sigurjónssonar, Péturs H. Blöndal, Willum Þórs Þórssonar, Líneikar Önnur Sævarsdóttir, Unnar Brár KOnráðsdóttur og Vilhjálms Bjarnasonar.
4) 12. mál - hlutafélög o.fl. Kl. 08:44
Fyrir fundinn voru lögð drög að nefndaráliti um málið. Þá var lögð fram tillaga um að málið yrði afgreitt á grundvelli álitsdraganna. Tillagan var samþykkt samhljóða.
5) Önnur mál Kl. 09:30
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.
Fundi slitið kl. 09:30