10. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 18. október 2018 kl. 09:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Þorgrímur Sigmundsson (ÞorgS), kl. 09:10

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 9. fundar var samþykkt.

2) 2. mál - ýmsar aðgerðir í samræmi við forsendur fjárlaga 2019 Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Róbert Farestveit frá Alþýðusambandi Íslands. Samhliða var fjallað um 3. dagskrárlið.

3) 3. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2019 Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Róbert Farestveit frá Alþýðusambandi Íslands. Samhliða var fjallað um 2. dagskrárlið.

4) 4. mál - aukatekjur ríkissjóðs Kl. 09:35
Nefndin fjallaði um málið.

5) 162. mál - vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Kl. 09:40
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar og samþykkti að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður þess.

6) 139. mál - ársreikningar Kl. 09:45
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar og samþykkti að Bryndís Haraldsdóttir yrði framsögumaður þess.

7) Önnur mál Kl. 09:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:50