39. fundur
fjárlaganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 26. janúar 2015 kl. 09:30


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:36
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 09:36
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 09:39
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:53
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:53
Sigurður Örn Ágústsson (SÖÁ) fyrir Harald Benediktsson (HarB), kl. 09:36

Karl Garðarsson, Valgerður Gunnarsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson voru fjarverandi vegna starfa á vegum Alþingis erlendis. Jón Þór Ólafsson áheyrnarfulltrúi var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Endurskoðun ríkisreiknings 2013 Kl. 09:38
Ríkisendurskoðun: Sveinn Arason og Ingi K. Magnússon. Sveinn og Ingi kynntu skýrslu stofnunarinnar um endurskoðun ríkisreiknings 2013.

2) Önnur mál Kl. 10:45
Rætt var um fyrirhugaða ferð fjárlaganefndar til Svíþjóðar. Ætlunin er að heimsækja sænsku fjárlaganefndina, fjármálaráð, sænsku ríkisendurskoðunina og ræða um opinber fjármál.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 144. þingi Kl. 11:04


Fundi slitið kl. 11:05