15. fundur
fjárlaganefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 19. desember 2016 kl. 15:20


Mættir:

Haraldur Benediktsson (HarB) formaður, kl. 15:20
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 15:20
Theodóra S. Þorsteinsdóttir (ThÞ) 2. varaformaður, kl. 15:20
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 15:20
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 15:20
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 15:20
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 15:20
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 15:20
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 15:20

Theódóra S.Þorsteinsdóttir vék af fundi 16.11 og Unnur Brá Konráðsdóttir kl. 16:45.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2017 Kl. 15:20
Nefndin hélt áfram umfjöllun um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017. Tekið var fundarhlé milli kl. 16:45 og 17:52 en þá mætti Ólafur Darri Andrason frá velferðarráðuneytinu og fór yfir tiltekna þætti frumvarpsins með nefndarmönnum og svaraði spurningum þeirra.

2) Önnur mál Kl. 19:12
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 19:14
Fundargerð 14. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 19:15