65. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, þriðjudaginn 28. apríl 2020 kl. 12:15


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 12:15
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 12:15
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 12:15
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 12:15
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 12:15
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 12:15
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 12:15
Páll Magnússon (PállM), kl. 12:15
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 12:15

Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) 724. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 12:15
Til fundarins komu Sigurður Hannesson, Ingólfur Bender og Sigríður Mogensen frá Samtökum iðnaðarins. Þau kynntu umsögn samtakanna og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 13:14
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 13:15
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 13:16