60. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, miðvikudaginn 15. apríl 2020 kl. 15:10


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 15:10
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 15:10
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 15:10
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 15:10
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 15:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 15:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 15:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 15:10
Páll Magnússon (PállM), kl. 15:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 15:10

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Samningur við Seðlabanka Íslands um ríkisábyrgðir til að auðvelda viðbótarlán lánastofnana til fyrirtækja Kl. 15:10
Til fundarins komu Sigurður H. Helgason, Jón Gunnar Vilhelmsson og Haraldur Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir kynntu samning milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Seðlabanka Íslands um ríkisábyrgðir til að auðvelda viðbótarlán lánastofnana til fyrirtækja. Þá svöruðu þeir spurningum nefndarmanna um efni samningsins.

2) Önnur mál Kl. 16:53
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 16:54
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 16:55