86. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 10. júní 2020 kl. 09:10


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:10
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:10
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:10
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10

Inga Sæland og Njáll Trausti Friðbertsson tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl., framlengd á þingfundum 14. apríl og 30. apríl sl. og endurnýjuð á þingfundi 8. júní sl.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 841. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 09:10
Eybjörg Hauksdóttir Björn Bjarki Þorsteinsson og Gísli Páll Gíslason frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Kl. 9:45. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Bergþór Heimir Þórðarson, Sigurjón Unnar Sveinsson og Sigríður Hanna Ingólfsdóttir frá Öryrkjabandalagi Íslands. Gestirnir kynntu umsagnir samtaka sinna og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) 842. mál - opinber fjármál Kl. 10:25
Allir viðstaddir nefndarmenn eru sammála um að afgreiða málið úr nefndinni og rita undir nefndarálit, nema Björn Leví Gunnarsson sem mun leggja fram nefndarálit minni hluta.
Jón Steindór Valdimarsson, áheyrnarfulltrúi, styður afgreiðslu málsins. Páll Magnússon var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir nefndarálitið og stendur að breytingatillögu í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

3) Önnur mál Kl. 10:36
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 10:37
Fundargerð 85. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:38