66. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 19. maí 2021 kl. 09:05


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:05
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:50
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:05
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:05
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:05
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:05

Inga Sæland boðaði forföll.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 627. mál - fjármálaáætlun 2022--2026 Kl. 09:05
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Jón Viðar Pálmason, Hlynur Hreinsson, Viðar Helgason, Katrín Anna Guðmundsdóttir, Dóróthea Jóhannsdóttir, Kristinn Bjarnason og Ásgeir Runólfsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau kynntu umfang og fjármögnun frekari Covid-19 aðgerða á árinu 2021 og svöruðu spurningum nefndarmanna um það efni.

2) Önnur mál Kl. 10:49
Rætt var um þá vinnu sem framundan er. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:50
Fundargerð 65. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:51