55. fundur
fjárlaganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, fimmtudaginn 2. maí 2024 kl. 12:50


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 12:50
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 12:50
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 12:50
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 12:50
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 12:50
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 12:50
Oddný G. Harðardóttir (OH) fyrir (KFrost), kl. 12:50
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 12:50

Jódís Skúladóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. Hún vék af fundi kl. 15:39. Vilhjálmur Árnason var fjarverandi. Oddný G. Harðardóttir vék af fundi kl. 14:51 og í hennar stað kom Kristrún Frostadóttir.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1035. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 Kl. 12:50
Til fundarins kom Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra. Með honum komu Ólafur Darri Andrason, Stefán Guðmundsson, Reynir Jónsson og Lárus Jóhannesson frá umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytinu.
Kl. 14:20 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla,- iðnaðar,- og nýsköpunarráðherra. Hún tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. Auk hennar komu Ásgeir Runólfsson, Ásdís Halla Bragadóttir, Sigríður Valgeirsdótir, Ottó V. Winther, Ragnhildur Björnsdóttir og Ari Sigurðsson frá háskóla,- iðnaðar,- og nýsköpunarráðuneytinu.
Kl. 15:45. Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra. Með honum komu Teitur Erlingsson, Hafþór Einarsson og Anna Tryggvadóttir frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Ráðherrarnir kynntu þau málefnasvið sem eru á ábyrgðarsviði ráðuneytis þeirra og svöruðu síðan spurningum nefndarmanna ásamt starfsfólki ráðuneytanna.

2) Önnur mál Kl. 16:50
Samþykkt var skv. 1. mgr. 24. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 51. gr. þingskapa að óska eftir ítarefni í formi minnisblaða um nokkur atriði úr kynningum ráðherrana. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 16:52
Fundargerð 54. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 16:53