45. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 14. apríl 2015 kl. 09:00


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:00
Helgi Hjörvar (HHj), kl. 09:00
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA) fyrir Pétur H. Blöndal (PHB), kl. 09:00
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 09:00
Vigdís Hauksdóttir (VigH), kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Meðferð trúnaðargagna í stjórnsýslunni ("lekamálið") og embættisskyldur innanríkisráðherra. Kl. 09:00
Formaður kynnti drög að skýrslu um meðferð trúnaðargagna í stjórnssýslunni og embættisskyldur innanríkisráðherra og nefndin ræddi málið.

2) Önnur mál Kl. 10:25
Brynhildur Pétursdóttir lagði til að nefndin fjallaði um Grósku málið sem var til umfjöllunar í Kastljósi en nefndin var með skýrslu Ríkisenduskoðunar um efnið til umfjöllunar, þ.e. skýrslu um þjónustu við fatlaða. Ákveðið að funda um málið.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30