47. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 12. apríl 2021
kl. 09:32
Mætt:
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:32Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:32
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:32
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:32
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:32
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:32
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:31
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:32
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:32
Kolbeinn Óttarsson Proppé var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:32
Fundargerðir 43. og 46. fundar voru samþykktar.
2) 339. mál - kosningalög Kl. 09:40
Nefndin ræddi málið.
3) Fall Wow air hf. Aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf. Kl. 09:34
Nefndin samþykkti að vísa skýrslu Ríkisendurskoðunar um fall WOW Air hf. - aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf. til umhverfis- og samgöngunefndar, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. þingskapa Alþingis.
4) Önnur mál Kl. 10:38
Þorsteinn Sæmundsson lagði fram eftirfarandi bókun: Ég fer fram á það við formann að hann sendi forseta formlegt erindi þar sem óskað verður eftir því að greinargerð setts ríkisendurskoðanda ad hoc um Lindarhvoll ehf. verði send stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Þá ræddi nefndin um efni bókunarinnar.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:45