11. fundur
utanríkismálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 7. desember 2020 kl. 09:30


Mætt:

Sigríður Á. Andersen (SÁA) formaður, kl. 09:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:45
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:45
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 09:35
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:30
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:30
Sunna Rós Víðisdóttir (SRV) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 09:30
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:30

Nefndarritarar:
Bylgja Árnadóttir
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1917. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 10. fundar var samþykkt.

2) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 11. desember 2020 Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar komu Bergþór Magnússon og Erna S. Hallgrímsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Elísabet Júlíusdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti.

Gestirnir fóru yfir þær gerðir sem til stendur að taka upp í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 11. desember nk. og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 209. mál - fjarskipti Kl. 09:45
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

4) 19. mál - utanríkisþjónusta Íslands Kl. 09:55
Bryndís Haraldsdóttir var valin framsögumaður málsins.

Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu: Sigríður Á Andersen form., Bryndís Haraldsdóttir frsm., Ari Trausti Guðmundsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir.

5) Önnur mál Kl. 10:25
Rætt var um störfin framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:35