60. fundur
utanríkismálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 30. júlí 2014 kl. 14:00


Mættir:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 14:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 15:10
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 14:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 14:00
Guðmundur Steingrímsson (GStein) fyrir ÓP, kl. 14:00
Karl Garðarsson (KG) fyrir ÁsmD, kl. 14:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 14:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv) fyrir ÁÞS, kl. 14:00
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 14:00

Vilhjálmur Bjarnason vék af fundi kl. 16:25.
Guðmundur Steingrímsson vék af fundi kl. 17:20.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

1621. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Ástandið í Úkraínu. Kl. 14:00
Á fundinn kom Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ásamt Sunnu Gunnars Marteinsdóttur aðstoðarmanni ráðherra, Pétri G. Thorsteinssyni sendifulltrúa og Estrid Brekkan deildarstjóra alþjóða- og öryggisskrifstofu utanríkisráðuneytis.

Ráðherra gerði grein fyrir stöðu málsins og heimsókn sinni til Úkraínu ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

2) Ástandið á Gaza Kl. 15:17
Á fundinn kom Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ásamt Sunnu Gunnars Marteinsdóttur aðstoðarmanni ráðherra, Pétri G. Thorsteinssyni sendifulltrúa og Estrid Brekkan deildarstjóra alþjóða- og öryggisskrifstofu utanríkisráðuneytis.

Utanríkisráðherra gerði grein fyrir stöðu málsins og viðbrögðum íslendskra stjórnvalda.

Minni hluti nefndarinnar; Svandís Svavarsdóttir, Össur Skarphéðinsson og Guðmundur Steingrímsson, lagði fram bókun í lok fundar:

Minni hluti utanríkismálanefndar Alþingis lýsir þungum áhyggjum vegna átakanna á Gaza og þess mikla mannfalls óbreyttra borgara, ekki síst barna, sem þau hafa valdið. Minni hlutinn tekur heils hugar undir þær áherslur sem fram koma í bréfi forsætisráðherra til Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísrael, og áréttar þau sjónarmið Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að upphaf og endir átakanna og mannfalls síðustu daga felist í ólögmætu hernámi Ísraelsstjórnar á Gaza og Vesturbakkanum, þar með talið Austur-Jerúsalem.

Alþingi samþykkti þingsályktun um viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu þann 29. nóvember 2011. Jafnframt skoraði Alþingi á Ísraelsmenn og Palestínumenn að leita sátta með friðarsamningum á grundvelli þjóðaréttar og ályktana Sameinuðu þjóðanna sem m.a. feli í sér gagnkvæma viðurkenningu Ísraelsríkis og Palestínuríkis. Þessi afstaða er enn í fullu gildi. Þau átök sem að undanförnu hafa geisað á Gaza undirstrika mikilvægi þess að varanlegur friður komist á í þessum stríðshrjáða heimshluta.

Minni hlutinn samþykkir harða fordæmingu aðalritara SÞ, Ban Ki Moon, á árásum herliðs Ísraelsmanna á skóla Sameinuðu þjóðanna í nótt sem leið, þar sem a.m.k. 19 manns létu lífið og hátt í hundrað særðust., og tekur undir með yfirmanni Flóttamannastofnunar SÞ í Palestínu (UNRWA) sem hefur lýst árásinni sem alvarlegu broti ísraelska hersins á alþjóðalögum .

Minni hluti utanríkismálanefndar Alþingis hvetur til þess að allra leiða verði leitað, bæði pólitískra, diplómatískra og efnahagslegra, til að stöðva blóðbaðið og þær hörmungar sem gengið hafa yfir palestínsku þjóðina. Rödd Íslands skiptir máli og henni ber áfram að beita í þágu friðar, mannréttinda, mannúðar og alþjóðalaga.

3) Önnur mál Kl. 16:40
Utanríkisráðherra gerði nefndinni grein fyrir máli innan Atlantshafsbandalagsins.

Nefndin fjallaði um mál fundarins eftir að ráðherra vék af fundi ásamt gestum kl. 16:45.

Gert var hlé á fundi kl. 17:22 og fundi var fram haldið kl. 17:34.

Fundi slitið kl. 17:45