10. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 22. október 2015 kl. 09:00


Mættir:

Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Björn Valur Gíslason (BVG) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 09:00
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 09:10
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:00

Óttar Proppé og Elín Hirst boðuðu forföll.
Össur Skarphéðinsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1692. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 9. fundar var samþykkt.

2) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 30. október 2015 Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar komu Bergþór Magnússon og Aðalheiður I. Þorsteinsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Eggert Ólafsson og Harpa Theodórsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Rúnar Guðjónsson frá innanríkisráðuneyti.

Gestirnir gerðu grein fyrir málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 185. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 28/2015 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:30
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Hanna Birna Kristjánsdóttir form., Karl Garðarsson frsm., Vilhjálmur Bjarnason, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Frosti Sigurjónsson og Björn Valur Gíslason.

4) 186. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 122/2015 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:33
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Hanna Birna Kristjánsdóttir form., Silja Dögg Gunnarsdóttir frsm., Vilhjálmur Bjarnason, Karl Garðarsson, Frosti Sigurjónsson og Björn Valur Gíslason.

5) 187. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 143/2015 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:36
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Hanna Birna Kristjánsdóttir form., Vilhjálmur Bjarnason frsm., Karl Garðarsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Frosti Sigurjónsson og Björn Valur Gíslason.

6) 188. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 15/2015 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:39
Afgreiðslu málsins var frestað til næsta fundar.

7) 189. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 117/2015 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:44
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Hanna Birna Kristjánsdóttir form., Silja Dögg Gunnarsdóttir frsm., Vilhjálmur Bjarnason, Karl Garðarsson, Frosti Sigurjónsson og Björn Valur Gíslason.

8) 190. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 9/2015 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:52
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Hanna Birna Kristjánsdóttir form., Vilhjálmur Bjarnason frsm., Karl Garðarsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Frosti Sigurjónsson og Björn Valur Gíslason.

9) 191. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 25/2015 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:55
Afgreiðslu málsins var frestað til næsta fundar.

10) Önnur mál Kl. 09:57
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00