8. fundur
utanríkismálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 21. nóvember 2022 kl. 09:30


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 09:02
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:02
Eva Sjöfn Helgadóttir (ESH), kl. 09:02
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:02
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:02
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:02

Diljá Mist Einarsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi vegna þingstarfa erlendis. Birgir Þórarinsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1977. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Fundargerðir 6. og 7. fundar voru samþykktar.

2) Formennska Íslands í Evrópuráðinu Kl. 09:03
Á fund nefndarinnar komu María Mjöll Jónsdóttir og Helen Inga S Von Ernst frá utanríkisráðuneyti. Þær fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Kynning á þingmálaskrá utanríkisráðherra á 153. löggjafarþingi Kl. 09:35
Á fund nefndarinnar kom Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ásamt Maríu Mjöll Jónsdóttur, Þórlindi Kjartanssyni, Jóhann Þorvarðarson og Gísli Rúnar Gíslason frá utanríkisráðuneyti.

Ráðherra kynnti þingmálaskrá sína og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) Ástandið í Úkraínu Kl. 10:15
Á fund nefndarinnar kom Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ásamt Maríu Mjöll Jónsdóttur, Þórlindi Kjartanssyni, Jóhann Þorvarðarson og Gísli Rúnar Gíslason frá utanríkisráðuneyti.

Ráðherra fjallaði um stöðu mála í Úkraínu og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) 22. mál - aukið alþjóðlegt samstarf í öryggis- og varnarmálum Kl. 10:55
Þorgerður K. Gunnarsdóttir var valin framsögumaður málsins. Ákveðið var að senda málið til umsagnar.

6) 130. mál - framtíð Íslands í svæðisbundinni, fjölþjóðlegri samvinnu Kl. 10:56
Þorgerður K. Gunnarsdóttir var valin framsögumaður málsins. Ákveðið var að senda málið til umsagnar.

7) 3. mál - þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið Kl. 10:57
Logi Einarsson var valinn framsögumaður málsins. Ákveðið var að senda málið til umsagnar.

8) 139. mál - rannsóknasetur öryggis- og varnarmála Kl. 10:58
Njáll Trausti Friðbertsson var valinn framsögumaður málsins. Ákveðið var að senda málið til umsagnar.

9) Önnur mál Kl. 10:59


Fundi slitið kl. 11:00