42. fundur
velferðarnefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 31. mars 2014 kl. 10:00


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 10:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) 1. varaformaður, kl. 10:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) 2. varaformaður, kl. 10:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 10:00
Elín Hirst (ElH), kl. 10:00
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 10:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 10:17
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 10:00
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 10:00

Þórunn Egilsdóttir vék af fundi kl. 10:50.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Málefni hjúkrunarheimila í Reykjavík. Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málefni hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu og fékk á sinn fund Páll Matthíasson og Sigríði Gunnarsdóttur frá Landspítalanum, Stellu K. Víðisdóttur frá Reykjavíkurborg og Bryndísi Þorvaldsdóttur og Heiði Margréti Björnsdóttur frá velferðarráðuneytinu.

2) 294. mál - aðgerðir í þágu lækningar við mænuskaða Kl. 11:10
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Siv Friðleifsdóttur fyrrverandi alþingismann og Kristján Erlendsson frá Landspítalanum. Svöruðu þau spurningum nefndarmanna.

3) 34. mál - brottnám líffæra Kl. 11:55
Nefndin fjallaði um málið.

4) 71. mál - skráning upplýsinga um umgengnisforeldra Kl. 11:58
Nefndin fjallaði um málið.

5) Önnur mál Kl. 12:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00